Gyða Dröfn Hjaltadóttir hefur verið kjörin formaður Ungra vinstri grænna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ungliðahreyfingunni, en landsfundi hennar í Grundarfirði lauk nú fyrir hádegi.
Gyða verður fyrsti formaður hreyfingarinnar í að minnsta kosti nokkur ár, en landsfundurinn samþykkti í gær lagabreytingu þess efnis að embætti formanns og varaformanns yrðu tekin upp á ný í stað svokallaðrar flatrar stjórnar.
Var um leið þeim kosningum sem áætlaðar höfðu verið til stjórnarinnar frestað til dagsins í dag, til að gefa kost á framboðum til nýju embættanna tveggja.
Framboðsfrestur rann út klukkan 10 í morgun og kynnti hreyfingin úrslit kjörsins rúmum hálftíma síðar, en Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir var þá kjörin varaformaður hreyfingarinnar.