Karlmanni og konu hefur verið sleppt úr haldi lögreglu í tengslum við frelsissviptingu og líkamsmeiðingar aðfaranótt þriðjudags á Akureyri sem leiddi til þess að karlmaður á fimmtugsaldri var lagður inn á sjúkrahúsið á Akureyri.
Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra en ekki var hægt að gefa meira upp um atburðarás eða ásetning að svo stöddu.
Af sjö sem voru handteknir vegna málsins hefur þremur verið sleppt en fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, þrír karlmenn og ein kona. Hafa þau öll komið áður við sögu lögreglu.