Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun eiga fund með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í ljósi þess að stjórn Bjartrar framtíðar og þingflokkur Viðreisnar, samstarfsflokka Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn, hafa lýst yfir að þessir tveir flokkar styðji ekki lengur það stjórnarsamstarf.
Fundurinn verður á Bessastöðum kl. 11:00 á morgun. Bjarni greindi frá því á blaðamannafundi í Valhöll að hann ætli að boða til kosninga.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.