Tveir skjálftar í Bárðarbungu

Bárðarbunga.
Bárðarbunga. mbl.is/Þórður

Jarðskjálfti upp á 3,9 átti sér stað á þriðja tímanum í dag í norðanverðri Bárðarbungu. Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálftanum fylgdi annar skjálfti sem var einnig 3,9 að stærð. Nokkrir eftirskjálftar komu í kjölfarið. Engin merki eru hins vegar um gosóróa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert