Nicole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar og formaður velferðarnefndar, telur lögfestingu á notendastýrðri persónuaðstoð, NPA, vera meðal þeirra mála sem brýnt sé að klára áður en gengið verður til kosninga 28. október næstkomandi.
„Ég vona sannarlega að það nái í gegn. Ég mun ekki geta horft í spegil ef ég næ ekki að vinna áfram með það,“ segir Nicole í samtali við mbl.is.
Í kafla um heilbrigðismál í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að lögfesting á NPA er meðal mála sem ríkisstjórnin hugðist styðja dyggilega við.
Frétt mbl.is: Hyggjast innleiða samning SÞ um réttindi fatlaðra og lögfesta NPA
Nicole segir málið vera á ábyrgð hennar og annarra nefndarmanna í velferðarnefnd. „Ég hef reynt að tala við þingmenn og byrjaði auðvitað fyrst á þeim sem sitja í velferðarnefnd. Þetta er náttúrlega á okkar ábyrgð og þetta er það sem við lofuðum þegar þing var sett í vor. Þetta var sett í forgang og ég mun halda áfram á þeirri braut þar til mér er sagt að ég megi það ekki lengur.“
Nicole vonast eftir því að málið fá hljómgrunn hjá þingmönnum. „Þingmenn eru úti um allt núna en ég vona að þeir allavega hlusti. Sumir eru sammála en þetta er erfiður tími.“