Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra mætir á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag. Á fundinum verður fjallað um reglur um uppreist æru. Í lok ágúst fór hún einnig á fund nefndarinnar þar sem einnig var rætt um uppreist æru og að honum loknum sat hún opinn fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Gestur á þeim fundi var Bergur Þór Ingólfsson.
Fundurinn hefst kl. 10 og verður sýndur beint á vef Alþingis og í sjónvarpinu á alþingisrásinni.