Íslenska bakaralandsliðið tekur þátt í Norðurlandakeppni í bakstri sem fram fer í Stokkhólmi um næstu helgi. Í landsliðinu eru sex ungir bakarar sem hafa á undanförnum mánuðum æft sig í gerð ýmis konar brauðmetis og gerð skrautstykkis.
Landsliðið keppir á vegum Landssambands bakarameistara, LABAK, við lið frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi, en liðið heldur utan á morgun, fimmtudag.
Keppt er í þremur flokkum, brauðgerð, gerð sætra smástykkja og gerð skrautstykkis sem verður að vera að öllu leyti úr ætilegu hráefni. Þema keppninnar er kvikmyndir og er bökurunum frjálst að velja hvað sem er innan þess þema. Íslenska liðið valdi kvikmyndina Mary Poppins og eru öll keppnisstykkin tengd myndinni á einhvern hátt.
Þjálfari bakaralandsliðsins er Ásgeir Þór Tómasson, fagstjóri baksturs í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Hægt er að fylgjast með liðinu á Snapchat undir „landslidbakara“.