„Það getur verið að málið leysist á næstu dögum ef frumvarpið fer í gegnum Alþingi,“ segir Magnús Davíð Norðdahl lögmaður fimm manna fjölskyldu frá Gana. Hann vísar til þess samkomulags sem náðist í gær um lok þingstarfa og á dagskrá verða nokkur frumvörp í dag meðal annars frumvarp um breytingar á útlendingalögum.
Magnús segir að krafist verður frestunar réttaráhrifa á úrskurði sem féll í gær en kærunefnd útlendingamála staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar um að fjölskyldan skuli yfirgefa landið. Það var gert þrátt fyrir að yfirlæknir á geðdeild Landspítalans telji að brottvísunin geti „valdið Mercy og fjölskyldu hennar óafturkræfu tjóni“. Þeim er gert að yfirgefa landið á næstu 30 dögum.
Magnús hefur ekki náð að kynna sér frumvarpið um breytingar á útlendingalögum. Hann bindur vonir við að ef það nái fram að ganga muni það breyta stöðu fjölskyldunnar til hins betra sem og annarra barnafjölskyldna í sömu stöðu.
„Í þessu máli munum við grípa til allra þeirra úrræða sem eru í boði,” segir Magnús. Þau úrræði eru meðal annars að krefjast frestunar réttaráhrifa, bera málið undir dómstóla, fara fram á endurupptöku málsins sé tilefni til þess o.frv.
Mercy Kyeremeh og drengjum hennar þremur, Godwin fimm ára, Emmanuele fjögurra ára og nýfæddu barni, var í gær gefinn 30 daga frestur til að yfirgefa landið. Staða fjölskyldunnar er afar viðkvæm enda liggja fyrir gögn þess efnis að móðir barnanna sé í mikilli sjálfsvígshættu. Hún hafi fyrr á árinu verið lögð inn á geðdeild Landspítala þess vegna.
Fjölskyldan hefur búið hér í tvö ár og hefur komið sér fyrir. Eldri börnin tvö eru farin að tala íslensku og eru á leikskóla.
Uppfært kl. 13:20:
Eftir að Magnús kynnti sér frumvarp um breytingar á útlendingalögum mun fjölskyldan frá Gana geta sótt um endurupptöku málsins hjá kærunefnd útlendingamála verði frumvarpið að lögum. Hann bendir einnig á að sú staða sé uppi að hægt væri að sækja um endurupptöku málsins óháð afdrifum frumvarpsins.