Jarðskjálfti af stærðinni 3,9 varð NNV af Grímsey klukkan 16.25. Jarðskjálftahrina er í gangi á svæðinu og um tugur eftirskjálfta hefur fylgt í kjölfarið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Borist hafa tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist á Norðurlandi.