Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Glitnir HoldCo ehf. fari fram á lögbann á fréttaflutning Ríkisútvarpsins af viðskiptum Glitnis. Ingólfur Hauksson, forstjóri Glitnis HoldCo segir í samtali við mbl.is að hann geti ekki staðfest eitt eða neitt og að hann vilji ekki tjá sig um fréttaflutning RÚV.
Fram hefur komið í fréttum RÚV að stofnunin hafi undir höndum gögn frá Glitni, meðal annars skýrslu sem KPMG vann fyrir slitastjórn Glitnis í lok árs 2008.
Frétt mbl.is: Gefur nákvæma mynd af samskiptum við Glitni
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Fjármálaeftirlitið skilgreindi þá sem komu að undirbúningi þjóðnýtingarinnar sem innherja, m.a. þingmenn, embættismenn og ýmsa ráðgjafa. Er nafn Bjarna á listanum, en í gögnum sem RÚV hefur undir höndum, er ekki að sjá að slitastjórn Glitnis hafi talið Bjarna hafa framið lögbrot með viðskiptum sínum.
Glitnir HoldCo ehf. höfðaði í dag staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna lögbannsins sem sett var á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media af viðskiptavinum Glitnis.
Skipta má lögbannskröfunni í þrennt. Í fyrsta lagi er farið fram á staðfestingu á því sem sýslumaður samþykkti í síðustu viku; að Stundin og Reykjavík Media megi ekki birta fréttir unnar úr gögnum Glitnis.
Í öðru lagi heldur Glitnir HoldCo því til streitu að Stundin og Reykjavík Media verði að afhenda gögnin en því hafnaði sýslumaður.
Í þriðja lagi er þess krafist að bannað verði að birta, eða fá aðra fjölmiðla til að birta, fréttir sem byggja á gögnunum.
Samkvæmt upplýsingum frá Stundinni bauð Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Stundarinnar, stefndu að falla frá stefnubirtingarfresti ef vilji væri fyrir því að fá málið þingfest á morgun.
Því var hafnað og málið verður þingfest eftir átta daga, eða 31. október, þremur dögum eftir Alþingiskosningar.