Frank Hall, sem hefur verið dagskrárstjóri Rásar 2 frá því í apríl 2014, lætur af störfum um áramótin. Þá mun einnig Ingólfur Bjarni Sigfússon, sem hefur verið nýmiðlastjóri RÚV og setið í framkvæmdastjórn, láta af störfum um áramótin.
Nýmiðladeild verður færð undir dagskrárstjóra Rásar 2 og mun hann sitja í framkvæmdastjórn, en staðan verður auglýst á næstunni. Þetta kemur fram á vef RÚV, en Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri tilkynnti starfsmönnum stofnunarinnar í dag nýtt skipurit sem tekur gildi um áramótin.
Ingólfur Bjarni er einn liðsmanna fréttaskýringaþáttarins Kveiks sem hefst á þriðjudaginn. Haft er eftir Magnúsi á vef RÚV að stjórnendur RÚV sýni því skilning að þeir Frank og Ingólfur vilji söðla um á þessum tímapunkti.
Á fundinum með starfsfólki RÚV var einnig kynnt nýtt framleiðslusvið RÚV og verður framkvæmdastjórastaða sviðsins auglýst á næstunni. „Þetta er í takt við stefnu RÚV um að efla framleiðslu, bæði fyrir RÚV og auðvelda sjálfstæðum framleiðendum og öðrum framleiðendum að nýta sér þjónustu RÚV,“ er haft eftir Magnúsi.