Hulda Björk Svansdóttir, móðir Ægis Þórs Sævarssonar, sem er fimm ára gamall strákur, er niðurbrotin eftir að hafa fengið neitun frá lyfjanefnd Landspítalans. Ægir er með Duchenne-sjúkdóminn, afar sjaldgæfan og ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóm sem yfirleitt leggst á drengi og Hulda sótti um lyfið Eteplirsen til að reyna að hægja á framgangi sjúkdómsins.
„Þetta er eina vonin sem hann hefur,“ segir Hulda í samtali við mbl.is. Á 17. júní í fyrra fékk fjölskylda Ægis fréttirnar að hann væri með Duchenne-sjúkdóminn. Hann er eini strákurinn á Íslandi sem er móttækilegur fyrir Eteplirsen.
Lyfið hægir á sjúkdómnum og gerir hann vægari að sögn Huldu, sem hefur kynnt sér lyfið. Ársskammtur af lyfinu fyrir Ægi kostar um 30 milljónir króna. Hulda bendir á að 17 ára strákur í Bandaríkjunum sem hefur verið á lyfinu í sjö ár hafi ekki fengið neinar aukaverkanir og sé enn gangandi en flestir Duchenne-strákar eru komnir í hjólastól í kringum 9 til 12 ára aldur. Lyfið hefur verið samþykkt í Bandaríkjunum.
„Ég á engin orð til að lýsa vonbrigðum mínum yfir því sem ég tel vera kjarkleysi heilbrigðiskerfisins sem mér finnst algerlega hafa brugðist okkur,“ segir Hulda en hún segir lyfjanefnd benda á að lyfið sé ekki enn leyfilegt í Evrópu.
„Þeir segja að það vanti fleiri rannsóknir en það er erfitt að gera langtímarannsóknir á sjúkdómnum. Þeir bera einnig fyrir sig að lyfjanefnd Evrópu hafi ekki samþykkt lyfið og að viðmiðunarlönd okkar séu ekki með þetta lyf,“ segir Hulda og bætir við að þetta þýði ekki að hún gefist upp.
„Við verðum bara að bíða. Í lok árs mun lyfjanefnd Evrópu fjalla um þetta mál og vonandi samþykkja þeir þetta, ég vil ekki trúa öðru,“ segir Hulda sem veltir því fyrir sér hvað þetta þýðir fyrir Ægi, sem hafi ekki allan tíma í heiminum til að bíða.
„Við erum búin að bíða í eitt og hálft ár. Maður verður bara að halda stanslaust áfram að reyna en við höfum ekki tímann með okkur.“
Hulda segir að það hljóti einhver hér á landi að geta breytt einhverju. Hún hafi meira að segja boðist til að skrifa undir skjöl sem segi að hún beri alla ábyrgð á framgangi lyfjameðferðarinnar, ef spítalinn er smeykur við það vegna þess að lyfið er nýtt í Evrópu.
„Það hlýtur einhver að geta gert eitthvað. Þetta er lítið barn sem við erum að tala um og það er til meðferð, ég trúi ekki að þetta þurfi að vera svona flókið,“ segir Hulda.