Yfir 26 þúsund utankjörfundaratkvæði hafa borist í Smáralind, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn. Í fyrra höfðu rúmlega 19 þúsund greitt atkvæði utankjörfundar á þessum tíma.
Alls höfðu tæplega 22.500 greitt atkvæði í Smáralind í gærkvöldi og tæplega 4.500 atkvæði höfðu borist annars staðar frá með pósti, s.s. erlendis frá.
Opið er í Smáralind til klukkan 17 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Hér er hægt að lesa nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu