Beit tunguna úr manni sínum

Konan beit tunguna úr manni sínum.
Konan beit tunguna úr manni sínum. mbl.is/Eggert

Lögreglan hyggst í dag fara fram á farbann yfir konu sem beit tunguna úr manni sínum í heimahúsi í Reykjavík í nótt. Farið var með manninn á spítala þar sem tungan var saumuð aftur upp í hann en hins vegar er óljóst hver árangurinn af þeirri aðgerð verður, að sögn Guðmundar Páls Jónssonar lögreglufulltrúa. RÚV greinir frá. 

Að sögn Guðmundar er maðurinn ekki grunaður um að hafa brotið gegn konunni – rannsóknin snúi að svo stöddu bara að heimilisofbeldi konunnar gegn manninum. Fleira fólk var í heimahúsinu þegar árásin átti sér stað og tilkynnti það lögreglunni um athæfið. Fólkið er erlent. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert