Ragnar kjörinn formaður KÍ

Ragnar Þór Pétursson formaður KÍ.
Ragnar Þór Pétursson formaður KÍ. Ljósmynd/Aðsend

Ragn­ar Þór Pét­urs­son hef­ur verið kjör­inn formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands. Hann hlaut 3.205 at­kvæði eða 56,3%. Þrjú voru í fram­boði til for­manns KÍ. Á kjör­skrá voru 10.675  og greiddu 5.691 at­kvæði, eða 53,3%. At­kvæðagreiðslan var ra­f­ræn; hún hófst á há­degi 1. nóv­em­ber og lauk klukk­an 14 í dag.

Féllu at­kvæði þannig: Guðríður Arn­ar­dótt­ir hlaut 1.944 at­kvæði eða 34,2%, Ólaf­ur Lofts­son hlaut 392 at­kvæði eða 6,9%, Ragn­ar Þór Pét­urs­son hlaut 3.205 at­kvæði eða 56,3% og voru auðir seðlar 150 eða 2,6%. Þetta kem­ur fram á vefsíðu KÍ

Ragn­ar Þór tek­ur við for­mennsku af Þórði Árna Hjaltested á VII þingi Kenn­ara­sam­bands­ins sem fram fer í apríl á næsta ári. Þórður læt­ur þá af embætti en hann hef­ur gegnt for­mennsku í KÍ frá ár­inu 2011. Ei­rík­ur Jóns­son var fyrsti formaður KÍ, sat frá ár­inu 2000 til 2011. 

Frá vinstri: Ragnar Þór Pétursson, Ólafur Loftsson og Guðríður Arnardóttir.
Frá vinstri: Ragn­ar Þór Pét­urs­son, Ólaf­ur Lofts­son og Guðríður Arn­ar­dótt­ir. Skjá­skot/​Kenn­ara­sam­band Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert