Björn Valur Gíslason, bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands, hefur óskað eftir því að bankaráð ræði birtingu Morgunblaðsins á símtali Davíðs Oddssonar og Geirs Haarde. Ráðið kemur saman á fimmtudag.
Frétt mbl.is: Ræddu örlög bankakerfisins
Björn Valur sagði í kvöldfréttum RÚV að nauðsynlegt væri að rannsaka hvort og þá hvernig trúnaðargögn hefðu lekið úr bankanum til fjölmiðla.
Í símtalinu milli Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins, og Geirs H. Haarde forsætisráðherra, sem átti sér stað skömmu fyrir hádegi 6. október 2008, má sjá að í fyrri samskiptum þeirra í milli hafi forsætisráðherra lagt á það áherslu að allra leiða yrði leitað til að bjarga Kaupþingi frá gjaldþroti. Endurrit þetta hefur aldrei komið fyrir augu almennings fyrr en í gær þegar Morgunblaðið birti það í heild sinni.
Björn Valur er fyrrverandi varaformaður og þingmaður Vinstri-grænna og situr nú í bankaráðinu. Að hans mati þarf að fá á hreint að endurritið sé hið raunverulega samtal og þá allt samtalið. Að hans sögn hefur bankaráðið aldrei heyrt samtalið, allavega ekki í hans fjögurra ára tíð. Hann hafi staðið í þeirri trú að upptakan væri hvergi til nema í bankanum.
„Sé svo að þarna sé um afrit af trúnaðarsímtali innan bankans að ræða þurfum við auðvitað að ræða það hvernig í ósköpunum þetta barst til fjölmiðla og hvort það sé í raun og veru mögulegt að fyrrverandi bankastjóri Seðlabankans hafi tekið þetta gagn ófrjálsri hendi úr bankanum, og jafnvel fleiri – það hafa fleiri símtöl verið hljóðrituð án vitundar viðmælenda úr Seðlabankanum, allavega á þessum tíma,“ sagði Björn Valur í kvöldfréttum RÚV.