Nú hefur verið kosið í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt í Reykjavíkurborg og niðurstöður liggja fyrir. Kosið var um framkvæmdir í hverfum borgarinnar og alls voru 450 milljónir til ráðstöfunar og fara þessar 450 milljónir í 76 verkefni á næsta ári.
Sama upphæð var til ráðstöfunar í fyrra, en þá voru 112 verkefni kosin. Þessi munur á fjölda skýrist af því að í ár urðu stærri verkefni fyrir valinu, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Dæmi um veglegustu og dýrustu verkefnin í ár eru vaðlaug við Grafarvogslaug (42 milljónir), göngustígur við Rauðavatn (18 milljónir), leiktæki og tartan í Breiðholtslaug (16 milljónir), endurbætur á leikvelli í Laugardalnum (14 milljónir) og tenging Hagatorgs í Vesturbænum við nærumhverfið (30 milljónir).
Í Grafarvogi fer framkvæmdaféð í þrjú verkefni en í Árbæ og Laugardal fara tólf verkefni á verkefnalista í hvoru hverfi.
10,9% Reykvíkinga nýttu sér rétt sinn til að kjósa á milli framkvæmda í sínu hverfi. Kosningaþátttaka árið 2016 var 9,4% og 7,3% árið 2015. Atkvæðisrétt höfðu allir íbúar í Reykjavík 16 ára og eldri, en kosningar stóðu yfir á vefnum Hverfið mitt 3.–19. nóvember.
Í skjalinu hér að neðan má sjá þau öll verkefni sem urðu fyrir valinu, fjölda atkvæða að baki valinu og áætlaðan kostnað við hvert og eitt þeirra.