Konu í stjórnmálum var byrlað nauðgunarlyf á landsfundi stjórnmálaflokks. Þetta er meðal þeirra 136 reynslusagna kvenna af kynferðisofbeldi og áreitni í stjórnmálum sem hefur verið deilt í lokaða facebookhópnum Í skugga valdsins undanfarna sex daga.
Frásagnirnar hafa nú verið gerðar opinberar og sendar fjölmiðlum.
„Mér var byrlað nauðgunarlyf í landsfundarhófi stjórnmálaflokks,“ segir konan í sinni frásögn. „Ég skammaðist mín alltaf fyrir að hafa þegið glas af ókunnugum manni, kenndi sjálfri mér um hvernig fór og ræddi þetta við fáa, en sem betur fer fór betur en á horfðist, það var gott fólk sem sá að ég var farin að missa fæturna undan mér (eftir tvö hvítvínsglös). Þarna er ég komin í blackout, man lítið sem ekkert eftir þessu, en blessunarlega var mér skutlað heim. Er þeim hjónum ævinlega þakklát, hefði getað endað með skelfingu. Finnst gott að það er vakning í þessum málum, takk fyrir þetta framtak, svona framkoma á ekki að líðast. #MEETOO“
Á fimmta hundrað stjórnmálakonur sendu í morgun frá sér sameiginlega áskorun þar sem þess er krafist að karlar taki ábyrgð og stjórnmálaflokkar taki af festu á stöðu mála varðandi kynferðisofbeldi og áreitni í íslenskum stjórnmálum.
Er þess krafist að flokkarnir og starfsstaðir stjórnmálaflokks setji sér viðbragðsreglur, lofi konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær muni fá stuðning.