Ættleiðingar ekki færri síðan 1995

Skjáskot/Hagstofa.is

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru 32 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2016 og hafa ættleiðingar ekki verið jafn fáar á einu ári frá 1995. Árið 2016 voru stjúpættleiðingar 17 en frumættleiðingar 15. Árið 2015 voru alls 47 ættleiðingar á Íslandi.

Frumættleiðingar frá útlöndum voru 12 árið 2016 sem er fækkun frá fyrra ári, þegar þær voru 17. Frumættleiðingar frá útlöndum hafa verið á milli 10 og 18 síðustu fimm ár. Undanfarin ár hafa flest ættleidd börn verið frá Kína en árið 2016 voru flestar ættleiðingar frá Tékklandi, alls níu. Með hugtakinu frumættleiðing er átt við ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.

Stjúpættleiðingar árið 2016 voru óvenju fáar eða 17. Það er mikil fækkun frá árinu 2015 þegar þær voru 28. Í öllum tilvikum var stjúpfaðir kjörforeldri, en það hefur jafnan verið algengast. Frumættleiðingar innanlands voru þrjár árið 2016. Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni (eða kjörbarni) maka umsækjanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka