Svanhildur Hólm Valsdóttir og Páll Ásgeir Guðmundsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.
Svanhildur hefur verið aðstoðarmaður Bjarna frá árinu 2012. Frá 2009-2012 var hún framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Svanhildur er lögfræðingur að mennt og starfaði um langt árabil við fjölmiðla.
Páll Ásgeir hefur verið aðstoðarmaður Bjarna frá því í apríl 2017. Áður en hann tók við því starfi vann hann í 14 ár hjá Gallup og gegndi í sjö ár stöðu sviðsstjóra markaðs- og viðhorfsrannsókna. Páll er með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.