53 doktorar fengu gullmerki

53 doktorar fengu gullmerki í gær.
53 doktorar fengu gullmerki í gær. Ljósmynd/Aðsend

Fimmtíu og þrír doktorar sem hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2016 til 1. desember 2017 tóku við gullmerki skólans á árlegri hátíð brautskráðra doktora í gær.

Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin á fullveldisdeginum í Hátíðasal skólans og viðstaddur athöfnina var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands.

Doktorsnemar frá öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands tóku við gullmerki Háskólans á hátíðinni. Í hópnum eru 14 karlar og 39 konur og fimm þeirra hafa lokið sameiginlegu doktorsprófi frá Háskóla Íslands og erlendum háskólum.

Doktorahópurinn er afar alþjóðlegur því rúmlega fjórðungur brautskráðra doktora á tímabilinu 1. desember 2016 til 1. desember 2017 er með erlent ríkisfang. Sá hópur kemur víða að úr heiminum, frá Evrópu, Norður-Ameríku, Asíu og Afríku.

„Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur eflst mjög á síðustu árum og hefur framlag doktorsnema til rannsókna og kennslu við skólann átt sinn þátt í aukinni velgengni hans. Í samstarfi við leiðbeinendur sína leggja doktorsnemar af mörkum mikilvægan skerf til þekkingarleitar og nýsköpunar og taka virkan þátt í að efla Háskólann sem alþjóðlega rannsóknastofnun,“ segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að á árinu 2017 muni alls 60 doktorar verja ritgerðir sínar og verður heildarfjöldi doktora sem lokið hafa námi frá Háskóla Íslands þá orðinn vel á sjötta hundrað.

Hefð er fyrir því að forseti Íslands ávarpi brautskráða doktora við athöfnina og færði Guðni Th. Jóhannesson doktorunum hamingjuóskir og hvatningarorð í ræðu sinni. Þá flutti Eydís Einarsdóttir, doktor í lyfjavísindum, ávarp fyrir hönd nýbrautskráðra doktora.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert