Margt var um manninn á Akratorgi í dag þegar jólaljósin á torginu voru tendruð við hátíðlega athöfn.
Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Lokalag kórsins var nýtt jólalag, Torgið ljómar, sem var samið sérstaklega af þessu tilefni af Valgerði Jónsdóttur, að því er kemur fram í tilkynningu frá Akranesbæ.
Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði frá uppruna trésins og aðstoðaði afmælisdrengina Birki Hrafn Theodórsson og Björn Leó Aronsson sem báðir urðu sjö ára í dag við að kveikja ljósin á jólatrénu.
Jólatréð sem prýðir torgið í ár var gróðursett um 1980 í landi Stóru-Fellsaxlar norðan megin við Akrafjall.
Eftir að ljósin á trénu voru kveikt, birtust nokkrir villtir jólasveinar sem virtust ekki alveg átta sig á því að þeirra tími væri ekki kominn. Þeir létu það ekki á sig fá og tóku nokkur lög með mannfjöldanum og laumuðu mandarínum í lófa barnanna áður en þeir hurfu aftur á braut.