Alvarlega særður eftir átök

Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins.
Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Tveir voru fluttir á slysadeild og er annar þeirra alvarlega særður eftir átök með eggvopni á Austurvelli um fimmleytið í morgun.

Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að einn maður hafi verið handtekinn grunaður um verknaðinn.

Rannsóknardeild lögreglunnar hefur tekið við rannsókn málsins.

Uppfært kl. 11:52:

Maðurinn sem er í haldi er grunaður um að hafa stungið mennina tvo með hnífi.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að annar mannanna sem var fluttur á slysadeild sé mjög alvarlega særður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert