Á síðasta fundi menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur flutti Trausti Harðarson, áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina í ráðinu, tillögu þess efnis að reist yrði stytta af Björk Guðmundsdóttur söngkonu, helst við Hörpu.
Lagt er til að menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar grípi þessa hugmynd á lofti og hefji skoðun á því að láta útbúa styttu af Björk Guðmundsdóttur söngkonu og ef til kemur finna góða staðsetningu á þeirri styttu.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað til næsta fundar, að því er fram kemur í frétt um mál þetta Morgunblaðinu í dag. sisi@mbl.is