Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi um það hverjar eignir og tekjur ríkustu Íslendinganna séu.
Óskar Logi eftir að fá að vita hvert eigið fé og heildareignir 5%, 1%, og 0,1% þeirra landsmanna sem mest áttu árið 2016 sé og hversu hátt hlutfall það sé af eigin fé og heildareignum allra landsmanna árið 2016?
Fyrirspurnin tekur einnig til tekna þeirra tekjuhæstu og til eiginfjár og heildareigna þeirra. Þá vill þingmaðurinn einng fá upplýsingar um það hvernig sú eign hefur þróast á árabilinu 1997–2015.
Að því er fram kemur á vef Kjarnans er fyrirspurn Loga samhljóma fyrirspurn sem Árni Páll Árnason, þáverandi formaður Samfylkingarinnar, lagði fram fyrir þremur árum síðan. Þeirri fyrirspurn svaraði Bjarni Benediktsson, þáverandi og núverandi fjármálaráðherra, í febrúar 2015. Kom fram í svari ráðherra á þeim tíma að þau 5% landsmanna sem mest áttu í lok árs 2013 hafi átt 1.052 milljarða króna og átt sá hópur, sem taldi þá um tíu þúsund fjölskyldur, þá tæpan helming alls eigin fjár á Íslandi.