Sendibíll flutti tugþúsundir skjala sem tengjast Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í Hæstarétt í dag er Davíð Þór Björgvinsson saksóknari skilaði ágripi sínum til réttarins vegna endurupptöku málsins.
Ágrip Davíðs samanstendur af öllum gögnum málanna tveggja og telur því um 20 þúsund blaðsíður.
„Það sem nú tekur við er að horfast í augu við þá staðreynd að nú eru að koma jól,“ sagði Davíð Þór, fulltrúi ákæruvaldsins í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins og settur ríkissaksóknari, á léttum nótum í samtali við mbl.is. Hann segir létti fylgja því að hafa loks skilað ágripinu sem hafi verið mikil vinna að koma saman vegna umfangsins.
Það næsta sem gerist í málinu er að Davíð Þór mun skila greinargerð um málið. Í greinargerðinni mun Davíð Þór setja fram sína kröfugerð í málinu með rökstuðningi. Hann fær frest til að skila henni en segist munu gera það „alveg örugglega í janúar. Ég held að það sé nokkuð ljóst“.
Verjendur sakborninga í málinu fá svo sinn frest til að skila greinargerðum sínum vegna málsins. Eftir það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að taka málið á dagskrá Hæstaréttar.
Guðmundur og Geirfinnur Einarssynir hurfu sporlaust árið 1974. Endurupptökunefnd féllst í febrúar á endurupptökubeiðnir er varða fimm menn sem sakfelldir voru í tengslum við mannshvarfsmálin tvö. Verjendur fimmmenninganna sem um ræðir eru: Guðjón Ólafur Jónsson hrl. (Albert Klahn Skaftason), Ragnar Aðalsteinsson hrl. (Guðjón Skarphéðinsson), Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. (Kristján Viðar Júlíusson, áður Kristján Viðar Viðarsson) Jón Magnússon hrl. (Tryggvi Rúnar Leifsson) og Oddgeir Einarsson hrl. (Sævar Marinó Ciesielski).
Áfrýjunarefndin féllst ekki á endurupptöku sjötta sakborningsins, Erlu Bolladóttur.
Með niðurstöðu um endurupptöku er málið núna lögum samkvæmt á þeim stað eins og áfrýjunarstefna hafi verið gefin út eftir dóm undirréttar, þ.e. Sakadóms Reykjavíkur 19. desember 1977. Þar voru þeir Sævar og Kristján Viðar dæmdir í ævilangt fangelsi, sem var fáheyrt.
Endurupptakan snýst um að endurtaka beri meðferð málsins fyrir Hæstarétti, að svo miklu leyti sem Hæstiréttur sér ekki annmarka á því.
Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu 22. febrúar 1980 og mildaði dóma Sakadóms Reykjavíkur. Þar hlaut Sævar 17 ára fangelsi og Kristján Viðar hlaut 16 ára fangelsi.