Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna og forseti borgarstjórnar, sækist eftir því að leiða lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í lok maí. Hún segir í tilkynningu að stefna og sjónarmið Vinstri grænna eigi að vera í stafni við daglega stjórnun borgarinnar næstu fjögur árin.
Hún segist vilja ganga til kosninga með það að leiðarljósi að efla borgarstjórnarflokk Vinstri grænna enn frekar og gera mun betur í þágu allra borgabúa, ekki síst þeirra sem mest þurfa að reiða sig á þjónustu borgarinnar.
Í tilkynningu Lífar segir að í framtíðinni felist fjölmörg tækifæri til að byggja á þeim árangri sem þegar hafi náðst á kjörtímabilinu og að stefnt sé að því að gera borgina sífellt betri fyrir íbúa hennar og gesti.
„Við þurfum að marka afdráttarlausa stefnu í átt til sjálfbærni og umhverfisverndar, jöfnuðar, mannúðar og mennsku - í öllu tilliti,“ segir Líf og bætir því við að stærstu viðfangsefni stjórnmálanna séu að bregðast við loftslagsbreyingum af mannavöldum, uppræta kynbundið ofbeldi og útrýma efnahagslegu, félagslegu og öðru misrétti.
Líf segir að Reykjavík sé einstök borg og að í hennar huga sé það ekki efnahagslegt ríkidæmi sem geri borgir góðar heldur þau mennta- og menningarverðmæti sem þar verða til, félagsauður borgarinnar og velferð, samspil borgarlífs og náttúru ásamt hagkvæmri og vistvænni nýtingu auðlinda sem áfram eiga að vera í almannaeign.
„Við eigum að standa vörð um og efla þessi auðævi,“ segir Líf í tilkynningu.
Líf segir að næstu ár muni einkennast af örum vexti borgarinnar og að setja þurfi kraft í að takast á við þá vaxtarverki sem fylgja stækkandi borg. Það verði gert með aukinni uppbyggingu húsnæðis, styrkingu almenningssamgangna og eflingu félagslegra- og efnahagslegra innviða.
„Þetta eru allt þættir sem snerta daglegt líf borgarbúa með einum eða öðrum hætti. Því skiptir máli að velja flokka sem hafa skýra sýn á þróun borgarinnar til langs tíma, geta hlustað og framkvæmt og átt í góðu samtali við öll þau sem gera þessa borg að því sem hún er. Þannig framboð er Vinstrihreyfingin - grænt framboð og þannig framboð vil ég leiða ásamt öflugum og fjölmennum hópi félaga minna til sigurs í vor,“ segir Líf.
Líf sat í skóla- og frístundaráði borgarinnar frá 2010-2014. Hún var varaborgarfulltrúi frá 2014-2016, formaður mannréttindaráðs, varaformaður skóla- og frístundaráðs og fulltrúi í stjórn Faxaflóahafna sf. Líf var kosin forseti borgarstjórnar í lok september 2016 þegar hún tók sæti í borgarstjórn og borgarráði.
Líf er menntaður grunnskólakennari og í sambúð með Snorra Stefánssyni lögmanni og hagfræðingi. Þau eiga fjögur börn á aldrinum 5- 17 ára og búa í Vesturbæ Reykjavíkur.