Stjórn Samtaka íslenskra auglýsingastofa segir að verði RÚV tekið af auglýsingamarkaði gæti sú leið að auglýsa í sjónvarpi skerst mikið þar sem miklar líkur séu á að það fé sem annars hefði farið til RÚV myndi enda að stórum hluta hjá erlendum netmiðlum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Í gær var skýrsla nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla afhent ráðherra, en í henni leggur meirihluti nefndarinnar til að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði.
Segir stjórn SÍA að auglýsingafé leiti alltaf á þann markhóp sem auglýsendur vilji auglýsa hjá og því þýði það að taka RÚV af markaði ekki endilega að fjármunirnir fari til innlendra einkarekinna fjölmiðla. Miklar líkur séu að þeir endi að stórum hluta hjá erlendum netmiðlum miðað við þróun undanfarin tvö ár á auglýsingamarkaði.
„Rekstur annarra sjónvarpsstöðva gæti jafnvel versnað til lengri tíma auk þess sem mun meira af birtingafé færist frá íslenskum fjölmiðlum til erlendra,“ segir í ályktuninni.
Lesa má ályktunina í heild sinn hér að neðan:
Ályktun frá stjórn SÍA um tillögu nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla um brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði
Vegna umræðu sem nú er í gangi um hvort RÚV eigi að vera áfram á auglýsingamarkaði, vill stjórn SÍA benda á eftirfarandi atriði:
Auglýsingar munu alltaf rata til þeirra sem þurfa á upplýsingunum að halda samkvæmt mati auglýsenda. Auglýsingabann hjá RÚV mun því ekki færa auglýsingafé til annarra sjónvarpsstöðva ef auglýsandi vill ná til þeirra sem horfa á RÚV. Eins og fram kemur í skýrslunni um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla má finna nýleg dæmi frá Evrópu (Frakklandi og Spáni) um það þegar auka átti markaðshlutdeild og tekjur einkarekinna sjónvarpsstöðva með því að skerða verulega eða taka alfarið ríkisfjölmiðla af auglýsingamarkaði. Orðrétt segir í skýrslunni: „Reynslan frá þessum ríkjum sýnir að þetta virtist ekki hafa haft þau jákvæðu áhrif á einkareknu sjónvarpsstöðvarnar sem til var ætlast.“
Hröð þróun hefur verið undanfarin ár í tilfærslu auglýsingafjár frá hefðbundnum miðlum, eins og sjónvarpi, yfir á netið. Undanfarin 2 ár hefur færsla auglýsingafjár verið sérstaklega mikil til erlendra netmiðla eins og Facebook og Google.
Það er mat sérfræðinga sem vinna við að skipta niður auglýsingafé að ef RÚV færi af auglýsingamarkaði myndi sú leið að auglýsa í sjónvarpi skerðast mikið þar sem miklar líkur eru á að það fé sem annars hefði farið til RÚV endi að stórum hluta hjá erlendum netmiðlun. Breytingin myndi hugsanlega hafa þau áhrif að sjónvarp breytist úr leiðandi miðli í jaðarmiðil fyrir auglýsendur á fáum árum. Þar af leiðir að það sem fjölmiðlar og almenningur fá út úr breytingunni er aukinn kostnaður við rekstur RÚV fyrir skattgreiðendur, rekstur annarra sjónvarpsstöðva gæti jafnvel versnað til lengri tíma auk þess sem mun meira af birtingafé færist frá íslenskum fjölmiðlum til erlendra.
Stjórn SÍA varar því við slíkum breytingum nema að vel athuguðu máli.“