Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund í dag kl. 9.15 um ákvarðanir dómsmálaráðherra og verklag við vinnslu tillögu til Alþingis um skipan dómara í Landsrétt. Á fundinn mætir Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, en hægt er að fylgjast með honum hér fyrir neðan.
Sigríður vék frá mati sérstakrar hæfnisnefndar sem mat 15 umsækjendur um dómarstöður hæfasta, en hún gerði 4 breytingar þegar hún skipaði í stöðurnar.
Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu í desember að ráðherrann hefði brotið stjórnsýslulög með því að fara ekki eftir mati nefndarinnar um hæfi umsækjenda. Var ríkið dæmt til að greiða tveimur af þeim fjórum dómurum sem skipt var út, Ástráði Haraldssyni og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, samtals 1,4 milljónir í miskabætur vegna ákvörðunar ráðherra.
Auk þess hafa Eiríkur Jónsson lagaprófessor og Jón Höskuldsson héraðsdómari krafist bóta. Jón fer fram á 30 milljónir króna í miska- og skaðabætur en upphæð fylgdi ekki kröfu Eiríks.
Sigríður hefur sagt að hún uni dómnum en að hún sé ósammála því að hún hafi brotið lög með ákvörðun sinni.
Fram hefur komið að sérfræðingar í dóms- og fjármálaráðuneytinu vöruðu Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra við því að ef hún ætlaði að breyta út af lista hæfnisnefndar um dómara við Landsrétt þyrfti hún að leggja sjálfstætt mat á alla umsækjendur.
Meðal þeirra sem vöruðu Sigríði við var Ragnhildur Arnljótsdóttir, settur ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Hún taldi skorta á rökstuðning Sigríðar og mælti með því að ráðherrann legði breytingar í hendur Alþingis eða frestaði skipan dómara. Fram kom hins vegar í fréttaskýringaþættinum kveik í gær að ráðherra teldi sig hafa fært nægjanleg rök fyrir ákvörðun sinni.