Vinstri hreyfingin – grænt framboð fagnar 19 ára afmæli í dag, en hún var formlega stofnuð 6. febrúar 1999 til að sameina vinstrisinna og náttúruverndarfólk fyrir þingkosningar 8. maí 1999.
Á stjórnarfundi VG síðastliðinn föstudag var samþykkt að ráðast í ritun sögu flokksins fyrir 20 ára afmælið á næsta ári.
Fram kemur í tilkynningu, að ritnefnd komi saman á næstunni og velji sagnfræðing til að starfa að sögurituninni. Stefnt er að því að sagan komi út á bók og boðin verði áskrift að henni.
Í sínum fyrstu kosningum fékk flokkurinn 9,1 prósent atkvæða. Í dag leiðir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, ríkisstjórn Íslands og er VG með þrjá ráðherra, forseta Alþingis og ellefu manna þingflokk á Alþingi, en flokkurinn fékk 16,9 prósent atkvæða í alþingiskosningum í haust, að því er fram kemur í tilkynningu.