Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptahraðalsins Efnis, segir að nær útilokað sé fyrir smærri aðila að halda uppi framleiðslu á vönduðum vörum og selja úr landi vegna himinhás sendingarkostnaðar frá Íslandi.
Hún segir t.d. að sendingarkostnaður á vörum sem Efni selur í gegnum vefverslun sína, ArcticBeauty.com, á 30-80 bandaríkjadali, sé að lágmarki 5.000 krónur.
Um þetta mál er fjallað í Morgunblaðinu í dag.