Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur skipað Arnald Hjartarson, aðstoðarmann dómara við EFTA dómstólinn, í embætti héraðsdómara sem hafa mun fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara mat Arnald hæfastan til að gegna embættinu.
Umsóknarfrestur var til 11. desember og barst 31 umsókn. Sex umsækjendur, sem skipaðir höfðu verið í embætti héraðsdómara frá 9. janúar, drógu umsóknir sínar til baka.