Stjórn og trúnaðarráð AFLs Starfsgreinafélags skorar á samninganefnd Alþýðusambands Íslands að segja upp núgildandi kjarasamningi í samræmi við endurskoðunarákvæði hans, þar sem forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati ASÍ.
Þetta kemur fram í ályktun sem AFL samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi.
Hún er svohljóðandi:
„Þar sem forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati ASÍ skorar stjórn og trúnaðarráð AFLs Starfsgreinafélags á samninganefnd Alþýðusambands Íslands að segja upp núgildandi kjarasamningi í samræmi við endurskoðunarákvæði hans. Gegndarlausar launahækkanir til æðstu embættismanna, þingmanna og annarra stjórnenda eru langt umfram það sem venjulegt launafólk fær og því eykst sífellt mismunun í samfélaginu. AFL Starfsgreinafélag telur því rétt að segja upp samningum og freista þess að ná samningum við atvinnurekendur og ríkisstjórn um aukinn jöfnuð og réttlæti. Það er kominn tími á að stöðva græðgisvæðingu yfirstéttarinnar og snúa vörn í sókn.“