Stjórnvöld hafa meðal annars lýst sig reiðubúin til að hækka hámarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna úr Ábyrgðasjóði launa án þess að samtímis verði hreyft við því gjaldi sem greitt er til sjóðsins í tengslum við samtal þeirra við aðila vinnumarkaðarins.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhenti á fundi í dag með forsvarsmönnum Alþýðusambands Íslands. Hámarksgreiðsla er í dag 385 þúsund krónur á mánuði vegna launamissis í allt að þrjá mánuði auk tryggingar á greiðslu orlofs. Hámarksgreiðsla á mánuði verður 633 þúsund krónur frá 1. júlí.
Stjórnvöld hyggjast enn fremur hækka atvinnuleysisbætur og er miðað við að þær verði 90% af dagvinnutekjutryggingu frá 1. maí. Þá verði hugað að mögulegri styttingu bótatímabilsins í 24 mánuði þannig að það verði sambærilegt við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Starfshópur um málið skilar niðurstöðum í haust.
Enn fremur verður hafin endurskoðun á tekjuskattskerfinu með áherslu á að draga úr skattbyrði. Sömuleiðis mögulegar breytingar á fyrirkomulagi persónuafsláttar og samspili við bótakerfi sem ætlað er að styðja við tekjulægri hópa. Ætlunin er að ljúka þessari vinnu á
haustmánuðum 2018 áður en fjárlög ársins 2019 verða afgreidd.
Stjórnvöld ætla einnig að hefja samtal um skattlagningu greiðslna úr sjúkrasjóðum. Kanna á möguleika á því að tryggja skattleysi slíkra greiðslna til launþega vegna heilbrigðisþjónustu að því er segir í yfirlýsingu forsætisráðherra, svo sem sálfræðiþjónustu og tannlækninga, án neikvæðra áhrifa á skattframkvæmd.
Þá verður gerð úttekt á stöðu Fræðslusjóðs og Vinnustaðanámssjóðs með tilliti til skilvirkni og árangurs. Tryggja verði námsúrræði og tækifæri fyrir þá sem litla menntun hafa á vinnumarkaði og tryggja sérstaklega að nám þeirra sem stunda starfs- eða verknám á vinnustað sé í samræmi við skilgreind náms- og færnimarkmið.
Verði þörf á að auknu fjármagni til þess að tryggja þessi markmið ætla stjórnvöld að bregðast við því. Þessari vinnu er ætlað að ljúka í haust áður en fjárlög ársins 2019 verða afgreidd.