Stjórnarandstöðuflokkarnir ræða sín á milli um möguleika þess að leggja fram vantrauststillögu á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra vegna framgöngu hennar í Landsréttarmálinu. Þetta var rætt á fundi þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar í dag. Kjarninn greindi fyrst frá.
„Við erum að skoða þetta,“ segir Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Of snemmt er að segja til um hvort vantrauststillagan verði lögð fram segir Oddný, spurð hvort meiri líkur en minni séu á því tillagan verði lögð fram.
„Ég er ekki alveg viss um að allir flokkarnir hafi nákvæmlega sömu áherslu í þessu,“ segir Ólafur Ísleifsson þingflokksformaður Flokks fólksins um vantrauststillöguna.
„Við viljum fara með gát og af ábyrgð,“ segir Ólafur spurður hvar flokkurinn liggur í þessu máli. Hann bendir á að ýmislegt verði að liggja fyrst fyrir áður en lengra er haldið meðal annars niðurstaða Hæstaréttar í máli Arnfríðar Einarsdóttur. Hún er einna þeirra dómara sem Sigríður mat hæfa til að gegna embætti dómara við Landsrétt.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson kærði niðurstöðu Landsréttar til Hæstaréttar en hann krafðist þess að fyrir Landsrétti að hún myndi víkja sæti úr Landsrétti vegna vanhæfis á grundvelli þess hvernig staðið var að ráðningu hennar.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, staðfestir þetta einnig. Stjórnarandstöðuflokkarnir ræddu þetta á fundi í dag eftir að umboðsmaður Alþingis taldi ekki ástæðu til að hefja frumkvæðisrannsókn á ákvörðun dómsmálaráðherra. Hann sendi bréf þess efnis til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á föstudag síðastliðinn.
Hún bendir á að í bréfinu komi margir áhugaverðir vinklar fram sem ekki hafa áður komið fram. „Mér finnst þeir tilefni til frekari yfirlegur,“ segir Þórhildur.
„Ég tel ágætar líkur á því,“ segir Þórhildur spurð hvort hún telji líklegt að stjórnarandstaðan nái samstöðu um að leggja fram vantrauststillöguna.