Mikill eldur logar í húsi Icewear og Geymslna í Miðhrauni í Garðabæ, á atvinnu- og iðnaðarsvæðinu aftan við Kaplakrika. Allt tiltækt slökkvilið, sem og slökkviliðsmenn á frívakt, er komið á vettvang. Maður sem kom að húsinu um átta í morgun, er eldurinn var nýkviknaður, segir að fólk hafi streymt út úr byggingunni er það varð eldsins vart.
Mikinn reyk leggur frá eldinum og sést hann víða að, m.a. úr Breiðholti, Fossvogi, Grafarvogi og Norðlingaholti. Lögreglan biður óviðkomandi að koma ekki á vettvang þar sem það skapi lögreglu „gríðarlegt álag að kljást við forvitið fólk,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Samkvæmt blaðamanni mbl.is sem er á staðnum er eldurinn í húsi Icewear og Geymslna.is í Miðhrauni. Mikinn og svartan reyk leggur frá eldinum og virtist hann, um 8.30 í morgun, frekar vera að færast í aukana. Búið er að setja upp tálmanir til að girða svæðið af. Fjölmargir slökkviliðsmenn eru á vettvangi sem og lögreglumenn. Svo virðist sem eldurinn sé bundinn við eitt hús.
Um klukkan níu sást hvar slökkviliðsmenn voru að reyna að brjóta sér leið inn í húsið með því að saga gat á hurð og innandyra sést mjög mikill eldur. „Slökkviliðsmenn á vettvangi eru hér fleiri en ég get talið,“ segir blaðamaður mbl.is.
Þá hefur hópur fólks safnast saman skammt frá vettvangi til að fylgjast með störfum slökkviliðsins.
Nökkvi Svavarsson, starfsmaður Ísafoldarprentsmiðju, var að mæta til vinnu rétt um átta í morgun er hann sá reyk koma frá byggingunni. „Þá var enginn slökkviliðsmaður kominn á staðinn en það virtist bara springa eldur og reykur upp úr þakinu.“
Hann segir fólk hafa komið út úr húsinu, að honum sýndist út úr verslun Icewear. „Bæði á vestur- og austurgafli hússins var fólk að tínast út.“
Nú rétt eftir klukkan 9 segir hann agnir koma niður úr reyknum, mögulega úr steinull. „Reykinn leggur hér að Ísafoldarprentsmiðjunni en það er sem betur fer logn svo það er ekki mikil mengun.“