Bjart að líta til allra átta og fannhvítir jöklanna tindar. Í flugtaki frá Reykjavíkurflugvelli kleif Hallgerður langbrók, en svo heitir vél Air Iceland Connect, bratt yfir Vatnsmýri, Kvos og Sund og svo var stefnan tekin í norðaustur. Yfir efsta kolli Esjunnar sást inn á hálendið.
Þegar inn yfir brúnir hálendisins kom kom blöstu við Hlöðufell, Bláfell, Kerlingarfjöll og í blárri móðu í austrinu mótaði fyrir Hvannadalshnjúk. Flugleiðin var yfir Langjökul, þaðan var svo sveigt til austurs og flogið yfir Blöndulón. Þar sást niður í fremstu dali Skagafjarðar sem voru einu sinni djúpar ristur í landi sem allt var undir snjó.
Jóhann Skírnisson flugstjóri fór í 21 þúsund fetum milli Reykjavíkur og Akureyrar dag einn í síðustu viku og mbl.is fór með eina bunu fram og til baka.
Birtan sem liggur í loftinu þessa dagana er einstaklega tær og falleg og þá er gaman að fljúga yfir landið okkar góða. Hálendið heillar en svo var líka margt áhugavert að sjá í byggð, á þessari undarlegu árstíð sem er einhversstaðar mitt á milli vetrar og vors. Nokkrar myndir úr ferðinni segja allt sem þarf.