Píratar leggja til að miðstöð innanlandsflugs flytjist úr Vatnsmýrinni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýsamþykktri stefnu Pírata í Reykjavík um miðstöð innanlandsflugsins. Áður en til þess komi þarf annar flugvöllur á suðvesturhorni landsins að hafa tekið við miðstöð innanlandsflugsins.
„Með nýsamþykktri stefnu vilja Píratar í Reykjavík hvetja stjórnmálafólk til að taka næsta skref í umræðunni um flugvöllinn og innanlandsflug,“ segir í tilkynningu frá flokknum.
Í stefnunni kemur einnig fram að Píratar í Reykjavík vilja að hraðlest milli Keflavíkur og Reykjavíkur verði skoðuð af alvöru. „Lestin myndi nýtast miðstöð innanlandsflugsins og tengja sveitarfélögin á SV-horninu saman búsetu- og atvinnulega. Hún myndi draga úr bílaumferð, vera umhverfisvæn og auka umferðaröryggi. Áfram verði unnið að rannsóknum og hagkvæmniathugunum,“ segir í stefnunni.
Stefna Pírata í Reykjavík um miðstöð innanlandsflugsins er svohljóðandi:
- Stefnt er að því að miðstöð innanlandsflugsins flytjist úr Vatnsmýrinni. Áður en til þess kemur þarf annar flugvöllur á suðvesturhorni landsins að hafa tekið við miðstöð innanlandsflugsins.
- Á meðan miðstöð innanlandsflugsins er í Vatnsmýrinni þarf að viðhalda Reykjavíkurflugvelli þannig að hann geti gegnt hlutverki sínu með sóma.
- Fullkanna þarf mögulegar staðsetningar miðstöðvar innanlandsflugsins á suðvesturhorninu og taka síðan ákvörðun um uppbyggingu með lýðræðislegum hætti.
- Hraðlest REY-KEF yrði mikil samgöngubót fyrir farþega í millilandaflugi. Lestin myndi nýtast miðstöð innanlandsflugsins og tengja sveitarfélögin á SV-horninu saman búsetu- og atvinnulega. Hún myndi draga úr bílaumferð, vera umhverfisvæn og auka umferðaröryggi. Áfram verði unnið að rannsóknum og hagkvæmniathugunum.
- Skoða þarf nýja staðsetningu miðstöðvar innanlandsflugsins í samhengi við mögulega hraðlest. Gæta þarf þess að skipulag lestarinnar og val á stöðvum falli vel að skipulagi og áætlun um Borgarlínu.