Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir mál Jan Erik Messman, fulltrúa á þjóðþingi Danmerkur og í Norðurlandaráði, sem segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við starfsmann Keflavíkurflugvallar, litið alvarlegum augum og verði tekið til skoðunar.
Messman, þingmaður danska Þjóðarflokksins, sem situr í utanríkismálanefnd danska þingsins og í Norðurlandaráði, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag „óþægilega afskiptasaman“ eftirlitsmann við öryggisleit hafa reiðst við sig og framkvæmt óþægilega leit eftir að öryggisshlið nam gervihné Jans Eriks, sem er úr málmi.
„Þar sem leitin var óþægileg sagði ég aftur að það væri hnéð sem væri vandamálið. Ég hef aldrei upplifað jafn óþægilega manneskju. Hann fór um buxnastrenginn og leitaði í buxunum innanverðum. Allt var skoðað,“ segir í grein Jans Eriks, sem kveðst miður sín.