Leiðsögumaðurinn og mótorhjólakappinn Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld fór fyrir hópi íslenskra mótorhjólamanna sem færðu rúmlega 90 skólabörnum í fjallaþorpi í Víetnam hlýjar úlpur sem munu nýtast vel yfir vetrartímann.
Eiríkur er ásamt 10 manna hópi í mótorhjólaferð um Víetnam sem hann skipulagði í samstarfi við ferðaskrifstofuna Farvel. „Við fórum í sambærilega ferð í fyrra og vorum með leiðsögumann frá Víetnam. Það er mikil fátækt í fjöllunum í Norður-Víetnam, þangað sem við vorum að fara, og leiðsögumaðurinn stakk upp á því að myndum heimsækja skóla á svæðinu og leggja smávegis í púkk og kaupa eitthvað handa þeim,“ segir Eiríkur í samtali við mbl.is.
Hópurinn tók að sjálfsögðu vel í það og færðu þau skólabörnum litlar gjafir, nammi, liti og stílabækur. Ári seinna er Eiríkur kominn á sömu slóðir og í þetta skiptið vildi hann bæta um betur. Sami leiðsögumaður var með í för í þetta skiptið og benti hann Eiríki á skólabörn í þorpi í fjöllunum rétt fyrir utan bæinn Sapa, sem þyrftu á hlýjum fatnaði að halda, en það getur orðið ansi kalt í fjöllunum í norðurhluta landsins.
Eiríkur segir að hlýjar úlpur séu kannski ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar hugsað er um Víetnam. „En þorpið er 1600 metrum yfir sjávarmáli og á veturna getur hitinn farið undir frostmark og það snjóar nokkrum sinnum á ári.“
Hópurinn keypti úlpur fyrir hvern einasta nemanda, 93 talsins, og lét senda frá höfuðborginni Hanoi. Þeir laumuðu svo nammi, snakki, stílabókum og ritföngum með í pakkann. Því næst héldu þeir á mótorhjólunum upp í fjöllin þar sem nemendurnir áttu von á þeim. „Það var alveg þvílík athöfn þegar við mættum. Við afhentum pakkann og þetta er klárlega það sem stendur upp úr í ferðinni. Þarna nær maður að gefa beint, það er enginn milliliður,“ segir Eiríkur.
Það sem vakti einna helst athygli mótorhjólakappanna var hversu mikill agi virðist vera í skólanum. „Þetta var alveg magnað, það er greinilega einn nemandi með það ábyrgðarhlutverk að láta alla fara í röð. Hann var með trommu og trommukjuða og þegar hann lamdi í trommuna sína hlupu allir út úr skólastofunum og mynduðu sex raðir og það heyrðist ekki múkk. Svo lamdi hann aftur í trommuna og þá sneru allir sér að okkur. Þetta minnti mann frekar á herdeild en lítinn barnaskóla,“ segir Eiríkur.
Hann segir að börnin hafi óneitanlega verið feimin, enda ekki á hverjum sem þau sjá stóra hvíta karmenn á mótorhjólum og hvað þá hlaðna gjöfum. „En um leið og við vorum farnir af svæðinu heyrðum við mikinn hlátur og nammibréfin voru farin að fjúka,“ segir Eiríkur.
Hér má sjá myndband af heimsókninni:
Ferðinni er nú lokið og er förinni heitið til Íslands þar sem Eiríkur mun starfa sem leiðsögumaður í sumar. Ferðalög, saga og mótorhjól eru hans þrjú helstu áhugamál og hann veit fátt skemmtilegra en að sameina þetta þrennt og nýta reynslu sína í að leiða íslenska ferðalanga um Víetnam á mótorhjóli. Í sumar mun hann hins vegar láta ferðalög innanlands nægja.