Allar ljósmæður í heimaþjónustu óvirkar

Nýr samningur ljósmæðra í heimaþjónustu við Sjúkratryggingar Íslands hefur legið …
Nýr samningur ljósmæðra í heimaþjónustu við Sjúkratryggingar Íslands hefur legið ósamþykktur hjá heilbrigðisráðuneytinu frá því fyrir páska. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það eru all­ar orðnar óvirk­ar á list­an­um,“ seg­ir Ell­en Bára Val­gerðardótt­ir, ljós­móðir á Land­spít­ala og sjálf­stætt starf­andi ljós­móðir í heimaþjón­ustu. Í gær var greint frá því að 60 ljós­mæður sem sinna heimaþjón­ustu myndu leggja niður störf í dag en nú er ljóst að all­ar 95 sem skráðar eru í kerfi heima­ljós­mæðra leggja niður störf.

Aðgerðin mun bitna harðast á ný­bökuðum for­eldr­um en aðgerðin mun leiða til þess að fleiri kon­ur þurfa að dvelja á meðgöngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­al­ans í fleiri daga. Nú eiga kon­ur rétt á fimm til sjö vitj­un­um heimaþjón­ustu sem þær verða að nýta inn­an tíu daga.

Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að aðgerðirn­ar hefðu komið henni á óvart. Ell­en er ósam­mála ráðherra og seg­ir hana ekki fara með rétt mál en nýr samn­ing­ur ljós­mæðra í heimaþjón­ustu við Sjúkra­trygg­ing­ar Íslands hef­ur legið ósamþykkt­ur hjá heil­brigðisráðuneyt­inu frá því fyr­ir páska.

„Þetta hef­ur legið inni á borði hjá henni síðan fyr­ir páska og ekk­ert hef­ur heyrst. Við send­um henni marg­ar skila­boð í gær um að við ætluðum í þess­ar aðgerðir. Það er ekki rétt sem hún seg­ir að þetta komi á óvart því hún hafi ekki heyrt neitt fyrr en í fjöl­miðlum.

Fundað verður um málið í heil­brigðisráðuneyt­inu í dag.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert