Töluvert magn jökulíss hefur undanfarnar vikur brotnað framan af Breiðamerkurjökli þar sem hann rennur út í Jökulsárlón. Þar sem mest hefur brotnað af jöklinum virðist sem hann hafi styst um 150 metra, á aðeins rúmum mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
Stephan Mantler, eigandi ferðaþjónustunnar Háfjalls ehf., náði eftirfarandi myndskeiði við Jökulsárlón síðla marsmánaðar. Á því má sjá hvar á sér stað mikil kelfing frá jöklinum, en það er þegar jakar brotna frá jöklum og út í lón eða sjó.
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við Jarðvísindastofnun, segir það gerast reglulega að ísjakar brotni framan af jöklum sem ganga fram í lón eða sjó, og það sé eðlilegt.
„Jökulsárlón hefur verið að stækka frekar hratt undanfarin ár, á kostnað Breiðamerkurjökuls,“ segir Ingibjörg. Árið í ár sé því ekki einsdæmi, til að mynda hafi brotnað talsvert magn árið 2016.
„Jökullinn skríður alltaf áfram, en svo brotnar mismikið af honum og mishratt.“