Alls voru 1.311 umferðarlagabrot skráð í mars á höfuðborgarsvæðinu og fjölgar brotunum mikið milli mánaða. Í febrúar voru til að mynda skráð 907 brot og 790 brot í janúar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarskýrslu um lykiltölur í afbrotafræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki hafa fleiri umferðarlagabrot verið skráð í einum mánuði á höfuðborgarsvæðinu síðan í janúar 2016.
Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að fjölgunina megi rekja til hraðamyndavélar sem sett hefur verið upp á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar. Myndavélin nemur einnig ef ökumenn aka yfir á rauðu ljósi. „Mér finnst það liggja í augum uppi að það er uppsetning á þessari vél sem er nýkomin úr kvörðun og er farið að beita aftur,“ segir Guðbrandur í samtali við mbl.is.
Myndavélin er ein af þeim sem er færð á milli kassa á ýmsum gatnamótum borgarinnar. Inni í tölfræðinni eru einnig umferðarlagabrot sem myndavélabíll á vegum lögreglunnar nemur. Fjöldi umferðarlagabrota af hraðamyndavélum á hringveginum er hins vegar undanskilinn.
Guðbrandur gerir ráð fyrir að maímánuður verði annasamur hjá umferðardeildinni, sérstaklega í ljósi þess að um mánaðamótin tekur ný reglugerð gildi um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot.
„Við viljum vekja eins mikla athygli og kostur er á því að allar sektir eru að hækka 1. maí,“ segir Guðbrandur. Umferðardeildin mun fylgjast sérstaklega með notkun farsíma án handfrjáls búnaðar í maí, en sekt fyrir að tala í síma undir stýri án slíks búnaðar hækkar í 40.000 krónur.