Ólöf Magnúsdóttir, þjóðfræðingur, nýskapari og leiðsögukona, leiðir lista Kvennahreyfingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 26. maí. Steinunn Ýr Einarsdóttir kennari skipar annað sæti listans og Nazanin Askari túlkur það þriðja.
Lista Kvennahreyfingarinnar í heild má sjá hér fyrir neðan:
- Ólöf Magnúsdóttir þjóðfræðingur, nýskapari og leiðsögukona
- Steinunn Ýr Einarsdóttir kennari
- Nazanin Askari túlkur
- Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari
- Steinunn Ólína Hafliðadóttir háskólanemi
- Svala Hjörleifsdóttir grafískur hönnuður
- Þóra Kristín Þórsdóttir aðferðafræðingur
- Bára Jóhannesdóttir Guðrúnardóttir sérfræðingur
- Andrea Eyland höfundur
- Eva Huld Ívarsdóttir meistaranemi í lögfræði
- Aðalheiður Ármann háskólanemi
- Bylgja Babýlons grínisti
- Anna Kristín Gísladóttir frístundaleiðbeinandi
- Hera Eiríksdóttir Hansen ráðstefnustjóri
- Pálmey Helgadóttir kvikmyndagerðakona
- Sunnefa Lindudóttir hjúkrunarfræðingur
- Guðfinna Magnea Clausen sjúkraliði
- Þórdís Erla Ágústsdóttir ljósmyndari
- Sigrún H. Gunnarsdóttir ljósmóðir
- Erna Guðrún Fritzdóttir dansari
- Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri og stofnandi Akkeris
- Edda Björgvinsdóttir leikkona
- Inga María Vilhjálmsdóttir verkefnastjóri
- Nichole Leigh Mosty verkefnastjóri
- Hekla Geirdal barþjónn