Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) tók formlega til starfa í dag. Stofnunin er ný ráðuneytisstofnun og mun í byrjun sinna stjórnsýsluverkefnum og eftirliti á sviði félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga, auk afmarkaðs eftirlits á sviði barnaverndar.
Á sviði barnaverndar mun eftirlit stofnunarinnar einskorðast við meðferðarheimili barna sem til þessa hefur heyrt undir skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu. „Hvort önnur eftirlits- og stjórnsýsluverkefni á sviði barnaverndar verða færð til stofnunarinnar ræðst af endurskoðun barnaverndarlaga sem stendur fyrir dyrum,“ segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.
Ákvörðun um að setja stofnunina á fót byggist á tillögum nefndar sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði árið 2014. „Markmiðið er að styrkja undirstöður heildstæðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga og skilja með skýrum hætti á milli stjórnsýslu- og eftirlitshlutans annars vegar og veitingu þjónustunnar hins vegar, líkt og gert er á sviði heilbrigðisþjónustu þar sem Embætti landlæknis annast eftirlit og tiltekin stjórnsýsluverkefni,“ segir í tilkynningu.
Sigríður Jónsdóttir er stjórnandi nýju stofnunarinnar og var hún skipuð af félags- og jafnréttismálaráðherra. Hún hefur starfað sem sérfræðingur í velferðarráðuneytinu undanfarin ár. Fjórir starfsmenn sem áður störfuðu á skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu hafa tekið til starfa hjá ráðuneytisstofnuninni, þau Guðrún Björk Reykdal, Halldór Gunnarsson, Rósa Guðrún Bergþórsdóttir og Salóme Anna Þórisdóttir. Á næstunni bætast við tveir starfsmenn til viðbótar og stendur ráðningarferli yfir.
„Þetta var löngu tímabært og er í samræmi við það sem nágrannaþjóðir okkar hafa gert í sama tilgangi, það er að efla eftirlit með viðkvæmri þjónustu, skilja á milli veitenda þjónustunnar og eftirlitsaðilans og síðast en ekki síst að stórefla vinnu við gerð gæðaviðmiða og kröfulýsinga,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, við opnun stofnunarinnar í dag.
Meðal verkefna stofnunarinnar er þróun útgáfu og gæðaviðmiða, kröfulýsinga og árangursmælikvarða, réttindagæsla fatlaðs fólks, endurgreiðslur til annarra stjórnvalda á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga og upplýsingaöflun og greining gagna.
Þá mun stofnunin einnig taka á móti tilkynningum eða ábendingum um misbresti í þjónustu eða stjórnsýslu þjónustuveitenda og sjá um úttektir, eftirlit og eftirfylgd.