Fundi í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins lauk á fimmta tímanum en að sögn formanns samninganefndar ljósmæðra kom ekkert nýtt fram á fundinum. Nýr fundur er boðaður 16. maí.
„Við lögðum fram gögn, okkar kröfur og rökfærslu. Samtalið var ágætt,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra, við mbl.is.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði um helgina að kröfur ljósmæðra séu um tuttugu prósentum hærri en það sem ríkið er reiðubúið að semja um og að ekki sé hægt að hækka laun ljósmæðra margfalt meira en laun annarra hópa.
„Ég veit ekki hvaðan fjármálaráðherra hefur sínar tölur eða upplýsingar. Það eina sem hefur verið sett á borð er 4,21% hækkun. Það er ekkert sem ber í milli því þetta er það eina sem hefur komið fram frá þeim,“ segir Katrín og bætir við að það sætti ljósmæður sig ekki við.
„Við erum að fara fram á leiðréttingu á launasetningunni.“
Níundi samningafundur ljósmæðra og ríkisins hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 15. Ljósmæður mættu til fundarins klæddar bolum sem á stóð „Eign ríkisins“.
Málinu var vísað til ríkissáttasemjara 5. febrúar síðastliðinn og hefur lítið þokast áfram í viðræðum deiluaðila.
„Við ætlum að hafa vinnudag og reifa aðeins hvort það sé hægt að finna einhverjar útfærslur eða kosti. Það er samtal í gangi og við vonum að eitthvað nýtt komi til og við verðum boðaðar á fund fyrir 16. maí,“ segir Katrín.