Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað starfshóp með aðkomu allra þingflokka til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Þess er vænst að tillaga hópsins verði lögð fram til umræðu á Alþingi í byrjun árs 2020.
Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir er formaður hópsins.
Kveðið er á um gerð langtímaorkustefnu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Tillaga Þórdísar Kolbrúnar um tilhögun verkefnisins var samþykkt í ríkisstjórn þann 19. janúar sl. og í kjölfarið var óskað eftir tilnefningum í starfshópinn, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.
Þórdís segir að ef vel tekst til geti niðurstaðan orðið eins konar þjóðarsátt um orkumál sem hægt verði að byggja á til langrar framtíðar.
Miðað er við að orkustefnan verði sett til 20-30 ára og sæti endurskoðun á nokkurra ára fresti. Þættir sem horfa skal til eru meðal annars:
- Áætluð orkuþörf til langs tíma
- Hvernig tryggja megi raforkuframboð fyrir almenning og atvinnulíf
- Orkuöryggi heimila og fyrirtækja um land allt
- Sjálfbær nýting orkuauðlinda
- Áframhald orkuskipta og aukið hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkubúskapnum
- Nýsköpun í orkumálum
- Aukið afhendingaröryggi raforku á landsvísu
- Hvernig treysta megi flutnings- og dreifikerfi raforku
- Auknar rannsóknir, m.a. varðandi nýja orkukosti
- Útflutningur hugvits og þekkingar á sviði orkumála
- Efling samráðs vegna framkvæmda á fyrri stigum og opið aðgengi að ákvarðanatöku
- Efling samkeppni á raforkumarkaði
- Samspil orkumála við ímynd Íslands, markaðssetningu og tengsl við lykilatvinnugreinar
- Framlag orkumála til loftslagsmála og samspil við alþjóðlegar skuldbindingar um loftslagsmál
- Að hámarka samfélagslegan ávinning af nýtingu orku
- Tekjustreymi af orkuinnviðum, að arður af nýtingu orkuauðlinda renni til þjóðarinnar og tekið sé tillit til nærsamfélaga
- Fyrirkomulag gjaldtöku í tengslum við nýtingu orkuauðlinda í opinberri eigu
- Viðbrögð við náttúruvá og tenging við almannavarnir
- Hugmyndir um útflutning raforku um sæstreng
- Stuðningur stefnunnar við atvinnustefnu og samspil við lykilatvinnugreinar
- Stuðningur stefnunnar við byggðastefnu og jákvæða byggðaþróun til lengri tíma
- Möguleikar nýrrar tækni m.a. á sviði vindorku, djúpborunar og sjávarfallaorku
Starfshópinn skipa:
- Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, formaður
- Páll Jensson, varaformaður
- Albertína F. Elíasdóttir, tilnefnd af þingflokki Samfylkingarinnar
- Árni V. Friðriksson, tilnefndur af þingflokki Miðflokksins
- Halla Signý Kristjánsdóttir, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins
- Kolbeinn Óttarsson Proppé, tilnefndur af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
- Kristín Vala Ragnarsdóttir, tilnefnd af þingflokki Pírata
- Njáll Trausti Friðbertsson, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
- Ólafur Ísleifsson, tilnefndur af þingflokki Flokks fólksins
- Þorsteinn Víglundsson, tilnefndur af þingflokki Viðreisnar
- Brynhildur Davíðsdóttir, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
- Harpa Þórunn Pétursdóttir, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
- Magnús Júlíusson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Ólafur Kr. Hjörleifsson, tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
Starfsmaður hópsins er Erla Sigríður Gestsdóttir sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Lagt er fyrir starfshópinn að hafa víðtækt samráð í störfum sínum, kalla eftir hugmyndum við upphaf starfs og leggja drög að langtímaorkustefnu fram í opið umsagnarferli þar sem öllum gefist færi á að senda inn athugasemdir og tillögur. Að lokinni úrvinnslu verði tillaga starfshópsins lögð fram á Alþingi til umræðu, eins og áður segir, í ársbyrjun 2020.