HM í Rússlandi hófst með pompi og prakt í dag. Söngvarinn Robbie Williams söng sín vinsælustu lög á opnunarathöfninni áður en Rússar unnu lið Sádi-Araba örugglega með fimm mörkum gegn engu.
Stemningin í miðborg Moskvu var frábær allan daginn og settu suðuramerískir knattspyrnuaðdáendur mark sitt á borgina eins og sjá má á ljósmyndum sem Eggert Jóhannesson náði. Íslenskir aðdáendur voru heldur ekki langt undan.