Samgöngustofa hefur birt myndband af árekstri sem varð fyrir stuttu á Hellisheiði. Ljóst er að ef ekki hefði verið búið að setja vegrið á milli akstursstefna hefðu afleiðingarnar orðið alvarlegar.
Í frétt frá Samgöngustofu segir að fyrstu fjóra mánuði þessa árs hafi orðið mikil aukning á framanákeyrslum á vegum landsins í samanburði við sama tímabil síðustu tíu ára. Þetta kemur fram í slysaskráningu Samgöngustofu en hér að neðan má sjá tölur um þetta. Í skýrslunni kemur einnig fram að í fyrra létust þrír af völdum framanákeyrslna en fimm það sem af er þessu ári.
Þótt Íslendingar séu meirihluti slasaðra og látinna vegna framanákeyrslna þá hefur fjöldi slasaðra og látinna erlendra ferðamanna rúmlega tvöfaldast frá því í fyrra og aukist um 138% á meðan fjöldi Íslendinga jókst um 49%. Heildarfjöldi slasaðra og látinna í framanákeyrslum fyrstu fjóra mánuði ársins 2018 hækkar um 64% frá sama tímabili ársins 2017.
Facebook-færslu Samgöngustofu, þar sem sjá má myndbandið af árekstrinum á Hellisheiði má sjá hér að neðan. „Þær ráðstafanir sem hafa verið gerðar til aðskilnaðar akstursstefna og uppsetning vegriða á Íslandi á undanförnum árum, hefur líkt og þetta myndband og fjöldi annarra tilfella vitnar um, bjargað fjölda mannslífa og komið í veg fyrir mjög alvarleg slys,“ segir í frétt Samgöngustofu. „Enn er þó eftir að vinna slíkar fyrirbyggjandi aðgerðir mjög víða á vegakerfinu en ljóst er að því fjármagni sem varið er til slíkra verkefna er vel varið.“
Uppfært: Í upphaflegri frétt kom fram að slysið hefði átt sér stað í Svínahrauni, en Samgöngustofa hefur sent frá sér leiðréttingu þar sem hið rétta kemur fram um að slysið hafi verið á Hellisheiði.