Ráðstefnan „Gerum betur“ er haldin á Hótel Natura í dag og hefst klukkan 10.00 en umfjöllunarefnið er samvinna í heimilisofbeldismálum.
Í lýsingu er sagt að ráðstefnan sé ætluð fagfólki sem vinnur með ofbeldi í nánum samböndum og almenningi sem vill láta sig málefnið varða. Jafnréttisstofa heldur ráðstefnuna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur opnunarerindi og í framhaldinu fylgja hinir ýmsu sérfræðingar.
Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni hér.